Saturday, January 16, 2010

Allt með sykri og rjóma

Ég verð inni í dag, veikur. Horið streymir úr hverju einasta gati á höfði mér en þetta er nú samt ekki svo slæmt. Ég hef þá að minnsta kosti afsökun til að halda mig frá þessari niðurdrepandi dumbu sem blasir við fyrir utan gluggann.
Ég er líka ekki svo aðframkominn að ég geti ekki bakað semlur, gómsætar gerbollur með marsipani og rjóma.
Ástkona mín er líka úti á einhverjum myndlistaropnunum svo ég get blastað óperum að vild.

Nei, ég bið ekki um meira í þessu lífi.

Æ, æ. Hveitið er búið.

Mikið yndislega er lífið ófullkomið.

0 comments: