Ég bauð ástkonu minni og ófæddri dóttur á morguntónleika í Fríkirkjunni í gær þar sem Ágúst Ólafsson og Gerrit Schuil fluttu Winterreise Schuberts. Og þvílíkur unaður! Rödd Ágústs er einstaklega falleg og túlkun hans svo tilfinningarík og smekkleg. Gerrit var líka frábær. Alveg er ég viss um að ófædd dóttir mín hefur kunnað að meta þetta þótt hún hafi ekki skilið hvað var að gerast, þessi elska.Áður en tónleikarnir hófust leist mér ekki á blikuna þar sem Geir Haarde dirfðist að mæta á tónleikana. Og hann settist beint fyrir aftan mig með þessari ógeðslegu kellingu sinni. Ég sneri mér nokkrum sinnum við og gaf þeim illt auga áður en við ákváðum að færa okkur upp á svalir. Þar eru bekkirnir harðari en útsýnið betra nema hvað við okkur blasti nú ekkert annað en bónaður skallinn á Ingibjörgu Sólrúnu sem sat bara knarreist á fremsta bekk. Það sauð virkilega á mér en græðingarmáttur tónlistarinnar er ótrúlegur og um leið og Gerrit sló fyrstu nótuna á píanóið var sem öll biturð liði úr líkama mínum og ég fann frið.
Það er yndislegt að fara á tónleika, að hlusta á tónlist af plötu er bara eins og að njóta konu í gegnum síma í samanburði við góða tónleika.

4 comments:
Schubert er yndislegur ! Þegar ég hlusta á á verk hans fyllist ég auðmýkt. Og þakklæti. Og hugrekki !
Sæll Hrólfur !
Ég ætla í golf um helgina, slá nokkra bolta ! Ertu karlmaður til að takast á við þá áskorun ? Ég viðurkenni að færni mín er slök. En ég gefst ekki upp !
(Ég var að lesa yfir það sem ég skrifaði og sé nú að íslenska mín er enskuskotin. Ég hugsa á ensku (stundum dönsku, en aðallega í draumum) -- líklega vegna þess að ég ólst upp að mestu í Ontario í Kanada og þar er töluð enska !)
Ég hef aldrei prófað golf.
Post a Comment