Thursday, September 09, 2010

Allt með sykri og rjóma

Ég er nú orðinn faðir á ný. Það er yndislegt. Dóttir mín reyndist vera drengur en það kemur ekki að sök og við feðgarnir virðumst ætla að eiga skap saman. Honum finnst gott að liggja hjá mér í sófanum og fá nudd og hlusta á barrokktónlist eða Halldór Laxness lesa ljóð.

Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta lánga sumardaga.

Þá er gaman að trítla um tún og tölta á eingi,
einkum fyrir únga dreingi.

Folöldin þá fara á sprett og fuglinn sýngur,
og kýrnar leika við kvurn sinn fíngur.

Já, þá horfir Hrólfur yngri á mig djúpbláum aðdáunaraugum og brosir. Draumur minn er að hann verði fiðluleikari. Fiðluleikari eða bóhem og ljóðaunnandi.


6 comments:

Anonymous said...

Til hamingju kæri vinur

Hrólfur S. said...

Takk fyrir það.

Kristján said...

Í fyrstu hélt ég að þetta væri Ida Handel að spila, fingurnir svo kvenlegir ! Ég var hissa á hljómfegurðinni en jafnaði mig svo þegar ég sá hver var raunverulega að verki !

Annars kann ég að meta Ida og aðrar konur sem vilja spila !

Kristján said...
This comment has been removed by the author.
Jónína said...

Þetta er allt voðalega sætt en ertu orðinn algjör kelling?

Hrólfur S. said...

Hvað er það sem þér finnst svona kellingalegt, Jónína mín?