Hver taug í líkama mínum skelfur enn eftir Walkyrie Wagners í gær í Metrópólitan-óperunni (/ í Kringlubíó). Ég er heltekinn og með afneitun ástarinnar-leiðarstefið og stef Siegfrieds á heilanum til skiptis. Það eina sem skyggði á sýninguna (fyrir utan kannski mörghundruð aukakíló Frikku) voru konurnar sem sátu fyrir aftan mig og töluðu meðan á sýningunni stóð. Siegmund er hundeltur í skóginum, yfirgefinn af föður sínum, móðir hans drepin, systur hans rænt, ást hans er forboðið sifjaspell og heimurinn dæmdur til að farast en þessar konur gátu ekki hætt að tala upphátt um það að Siegmund slefaði þegar hann söng (so what? Hvað myndu þær gera í hans stöðu). Að lokinni sýningu fórum við félagarnir í Wagner-klúbbnum og fengum okkur að borða á Kringlukránni og ræddum sýninguna. Yndislegur félagsskapur.
Sunday, May 15, 2011

Subscribe to:
Post Comments (Atom)

2 comments:
Siegmund/Kaufmann slefaði víst vegna tannréttinga.
Sæll, Hrólfur. Mig langar dálítið að heyra í þér varðandi persónulegt mál. Geturðu nokkuð sent mér póst á parisardaman hja gmail?
Post a Comment